Velkomin á Gistiheimilið 66
 
Gistiheimilið 66 er staðsett að Túngötu 2 á Suðureyri eða í hjarta bæjarins. Suðureyri við Súgandafjörð er lítið fallegt sjávarþorp sem vinalegt er heim að sækja. Stutt er í sundlaugina sem er eina útisundlaug Ísafjarðarbæjar, göngutúr á höfnina, á veitingastað eða í heimsókn á bar heimamanna.

Gistiheimilið 66 býður upp á allt það sem prýðir góð gistiheimili, vel útbúin og fallega innréttuð herbergi, rúmgóðan og bjartan borðsal þar sem boðið er upp á morgunverð, góða sturtuaðstöðu, sjónvarp og þráðlaust internet.

Einnig er góð aðstaða fyrir barnafólk, boðið er upp á smábarnarúm ásamt kodda og sæng endurgjaldslaust.

Ef þú vilt upplifa notalega sjávarþorps stemningu, kynnast hinu ljúfa lífi úti á landsbyggðinni, njóta líðandi stundar á fallegum stað þar sem stutt er í óspillta náttúrana er Suðureyri staðurinn fyrir þig og þína. Það er einungis 15 mínútna akstur til Ísafjarðar þar sem hægt er að sækja alla aðra þjónustu.

Upplýsingar um verð finnurðu hér á síðunni. Hægt er að bóka herbergi í gegnum bókunarkerfi okkar hér, senda okkur línu á gisting@66guesthouse.is eða í síma 456 5566.