Smáhýsi í Tungudal
Guðmundur Tryggvi Ásbergsson hefur sótt um leyfi til að reisa 20 smáhýsi í Tungudal. Ætlunin er að leigja þau út ferðamönnum. „Þetta er áframhald á því sem maður er byrjaður á,“ segir Guðmundur en hann opnaði gistiheimili á Suðureyri fyrr á árinu. Umsókn Guðmundar og teikning af smáhýsunum, unnin af Tækniþjónustu Vestfjarða, var lögð fram á síðasta umhverfisnefndarfundi. Fyrirhugað er að húsin verði á svæði sem er innan og vestan við tjaldsvæðið í Tungudal. Nefndin lét bóka að hún telji hugmyndina spennandi og fól tæknideild að skoða kostnað við uppbyggingu vegar inn að svæðinu og útfærslur á skipulagi. Nefndarmenn tóku þó fram að hugmyndin falli ekki að aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Aðspurður segist Guðmundur vera tilbúinn að ráðast í framkvæmdir um leið og leyfi fæst. „Það er allt tilbúið frá minni hendi og nú bíð ég bara eftir grænu ljósi. Ég reikna þó með því að byrja á tíu húsum fyrsta árið, þetta tekur allt sinn tíma.“ Eins og fyrr sagði hyggur Guðmundur á frekari landvinninga í ferðamálabransanum með þessari hugmynd en hann opnaði Gistiheimilið 66 á Suðureyri um páskana. Segir hann aðsóknina í gistiheimilið hafa verið samkvæmt vonum. „Þessi ferðageiri er eiginlega ári á undan þannig að það má segja að mitt fyrsta ár verði í raun næsta sumar. Þegar ég opnaði í ár voru allar ferðaþjónustur búnar að panta fyrir sumarið. En það hefur verið talsvert af fyrirspurnum frá erlendum ferðaskrifstofum fyrir næsta sumar.“ http://bb.is/?PageID=26&NewsID=152232
13.8.2010 00:00:00 Lesa alla fréttina

Velkomin á Gistiheimilið 66
Gistiheimilið 66 var opnað í apríl í ár og er það staðsett á Suðureyri við Súgandafjörð. Suðureyri er lítið fallegt sjávarþorp sem vinalegt er heim að sækja. Þar er til að mynda að finna einu útisundlaug Ísafjarðarbæjar og margar fallegar gönguleiðir eru á þessum slóðum. Gistiheimilið 66 er staðsett í hjarta bæjarins, stutt í sundlaugina, göngutúr á höfnina, á veitingastað eða í heimsókn á bar heimamanna. Ef þú viltu upplifa notalega sjávarþorps stemningu, kynnast hinu ljúfa lífi úti á landsbyggðinni njóta líðandi stundar á fallegum stað þar sem stutt er í óspillta náttúruna þá er Suðureyri staðurinn til að heimsækja. Það er einungis 15 mínútna akstur til Ísfjarðar þar sem hægt er að sækja alla aðra þjónustu.
14.6.2010 00:00:00 Lesa alla fréttina